Takk, ég
Íslandsbanki bauð upp á glænýtt sjónarhorn á reglulegan sparnað, til þess að hvetja unga sem aldna til aukins sparnaðar. Þú getur þakkað þér fyrir sparnaðinn!


•
grafísk hönnun
•
hugmyndavinna
•
hreyfigrafík
•
textasmíði
Á hverju ári eru landsmenn minntir á að það sé skynsamlegt að leggja fyrir. Á hverju ári fresta fjölmargir því um annað ár. Fyrir sparnaðarherferð Íslandsbanka ákváðum við því að gefa skynsemishyggjunni frí og undirstrika frekar tilfinningu — sjálfsþakklæti. Með því að leggja fyrir skapast um leið ástæða til að þakka sjálfum sér. Svo við réðumst í tökur með fyrirsætum sem geisluðu af þakklæti í eigin garð. Og máluðum netheima rauða.



