Sumarið er þitt
Sumarið er okkar, sumarið er þitt. Þannig hljómar grunnstefið í sumarherferð Símans þar sem við lögðum upp með að miðla andlegri bongóblíðu og jarðbundinni bjartsýni.


•
hugmyndavinna
•
grafísk hönnun
•
hreyfigrafík
•
textasmíði
Í ársbyrjun 2020 var fjölmargt hrifsað af okkur fyrirvaralaust. Skyndilega varð okkur ókleift að ferðast, fara í sund eða jafnvel bara að faðma fjölskyldumeðlimi. En ef það er eitthvað sem aldrei verður hægt að taka frá okkur sóldýrkendunum á Íslandi þá er það sumarið. Þá er bara að henda tjaldinu í bílinn og bruna beint til Ibizafjarðar.



Frostpinnar, sápukúlur, snjallsímar og sumar!

