Þrjátíu daga skilafrestur
ELKO býður viðskiptavinum sínum 30 daga skilarétt á glás af vörum, sem er sjaldséð þjónusta hérlendis. Sannkölluð himnasending fyrir hvatvísa kaupendur – frá ELKO.

•
hugmyndavinna
•
grafísk hönnun
•
framleiðsla
Þjónustan er munaður fyrir hina framhleypnu, valkvíðnu og óákveðnu, enda þýðir hún að hægt sé að prufukeyra hárþurrkuna heima hjá sér áður en ákveðið er hvort hún sé sú eina rétta. Til að undirstrika kosti þjónustunnar sögðum við stuttar og léttar sögur af ungu pari, og rannsökuðum kjörlendi þess í leiðinni.

Viðfang: Lifnaðarhættir ungs fólks á 21. öldinni
